Paul Pogba réð úrslitum þegar Manchester United sigraði Fulham 2:1 í London í kvöld í ensku úrvalsdeildinni.
Fulham náði forystunni í leiknum strax á 5. mínútu. Ademola Lookman slapp inn fyrir vörn United og skoraði með hnitmiðuðu skoti.
Úrúgvæinn Edinson Cavani hefur verið fljótur að setja mark sitt á lið United og jafnaði metin á 21. mínútu þegar hann var fyrstur að átta sig í vítateignum og skoraði af stuttu færi.
Frakkinn umtalaði Paul Pogba skoraði sigurmarkið með föstu skoti utan teigs með vinstri fæti á 66. mínútu eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði.
Leikur Fulham og Manchester United var í beinni útsendingu hjá Síminn Sport.