Markvörðurinn ungi Jökull Andrésson sem leikur með enska knattspyrnuliðinu Reading gerði það gott í stuttri lánsdvöl hjá enska D-deildarliðinu Morecambe.
Hann spilaði tvo leiki í sjö daga neyðarlánsdvöl, hélt markinu hreinu í tveimur sigurleikjum, og var í dag valinn í lið umferðarinnar í deildinni.
Here's your #SkyBetLeagueTwo Team of the Week, powered by @WhoScored ratings!#EFL pic.twitter.com/dmOIShtUka
— Sky Bet League Two (@SkyBetLeagueTwo) January 27, 2021
Jökull og félagar sigruðu Exeter 2:0 á útivelli í gærkvöld en Jökull hafði einmitt verið á láni hjá Exeter í nokkrar vikur fyrr í vetur og þá fengið mjög góða dóma fyrir frammistöðu sína. Um síðustu helgi varði hann mark Morecambe í 3:0 sigri á Colchester.
Jökull snýr nú aftur til Reading þar sem hann er einn af fjórum markvörðum í aðalliðshópnum en Morecambe, sem er í þriðja sæti D-deildarinnar eftir þessa tvo sigurleiki, samdi í gær við reyndan markvörð sem á að leika með liðinu út tímabilið.