Gylfi fyrirliði gegn gamla liðinu

Gylfi Þór Sigurðsson skorar gegn Leeds.
Gylfi Þór Sigurðsson skorar gegn Leeds. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson ber fyrirliðabandið í liði Everton gegn Tottenham á heimavelli í 16-liða úrslitum enska bikarsins í fótbolta í kvöld. 

Gylfi var ekki í byrjunarliði Everton í síðasta deildarleik gegn Manchester United en snýr nú aftur. 

Þar á undan var Gylfi í byrjunarliði og skoraði eitt mark í 2:1-sigri á Leeds í ensku úrvalsdeildinni. 

Leik Everton og Tottenham verður lýst í beinni textalýsingu á mbl.is og má nálgast lýsinguna hér fyrir neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert