Magnaður Gylfi sá fyrsti í níu ár

Gylfi Þór Sigurðsson lék gríðarlega vel í kvöld.
Gylfi Þór Sigurðsson lék gríðarlega vel í kvöld. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson átti magnaðan leik fyrir Everton í 5:4-sigri á Tottenham í enska bikarnum í fótbolta í kvöld. 

Gylfi skoraði eitt mark og lagði upp þrjú en hann er fyrsti leikmaðurinn sem leggur upp þrjú mörk í sama leiknum fyrir Everton síðan Steven Pienaar gerði það gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni í apríl 2012. 

Duncan Ferguson aðstoðarþjálfari Everton hrósaði Gylfa í hástert eftir leik. „Dominic Calvert-Lewin var góður en Gylfi Sigurðsson var magnaður. Það spiluðu margir vel hjá okkur,“ sagði Ferguson við BT Sports. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert