Leicester fór upp fyrir Manchester United og í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu er þeir James Maddison og Harvey Barnes skoruðu tvö mörk á fjögurra mínútna kafla í 2:1-sigri á Aston Villa í dag.
Heimamenn minnkuðu muninn og reyndu svo að kreista fram jöfnunarmark en allt það helsta úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.