Leikmenn Crystal Palace nýttu marktækifærin mun betur en leikmenn Brighton þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Crystal Palace vann 2:1 en liðið átti þrjú markskot í leiknum en Brighton tuttugu og fimm.
Bæði mörkin hjá Palace voru hugguleg. Jean-Philippe Mateta skoraði fyrra markið með hælspyrnu á 28. mínútu eftir fyrirgjöf frá Jordan Ayew. Joel Veltman jafnaði fyrir Brighton með skoti úr teignum á 55. mínútu.
Belginn Christian Benteke skoraði sigurmarkið í uppbótartímanum. Andros Townsend gaf fyrir frá vinstri og Benteke tók boltann á lofti og náði að stýra honum í vinstra hornið.
Leikur Brigton og Crystal Palace var í beinni útsendingu á Símanum Sport.