Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Manchester United, var gríðarlega óánægður með dómgæsluna í markalausa jafnteflinu gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Gestirnir vildu fá vítaspyrnu á 14. mínútu leiksins þegar Callum Hudson-Odoi handlék knöttinn inni í vítateig en eftir langa athugun myndbandsdómarans var ákveðið að dæma ekkert. „Þetta var vítaspyrna, 100%. Ef þetta kallast að hafa höndina í náttúrulegri stöðu þá hlýt ég að vera blindur,“ sagði æstur Solskjær við BBC eftir leikinn.
„Við vildum vinna leikinn, það vantaði aðeins meiri gæði í okkar leik á síðasta þriðjungnum en við spiluðum vel,“ bætti Norðmaðurinn við. Man Utd er áfram í öðru sæti deildarinnar, 12 stigum á eftir grönnum sínum í Manchester City. Chelsea er áfram í fimmta sætinu, einu stigi á eftir West Ham United í fjórða sætinu.