Ekki sem West Hamskipti

Declan Rice, Tomáš Soucek, Saïd Benrahma og Jesse Lingard fagna …
Declan Rice, Tomáš Soucek, Saïd Benrahma og Jesse Lingard fagna marki gegn Leeds United á dögunum. AFP

West Ham United hefur komið allra liða mest á óvart í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í vetur og eygir í fyrsta sinn von um Meistaradeildarsæti undir stjórn endurfædds Davids Moyes.

„Ég held að það séu bara tveir eða þrír knattspyrnustjórar með hærra sigurhlutfall í úrvalsdeildinni. Það er það sem ég geri, ég vinn. Ég er hingað kominn til að færa West Ham sigra og koma liðinu úr fallsæti.“

Þannig komst David Moyes að orði þegar hann tók öðru sinni við stjórn Lundúnaliðsins í árslok 2019. Hvorki hafði gengið né rekið síðustu mánuðina undir stjórn Chile-mannsins Manuels Pellegrinis og staða Hamranna þröng, þeir voru aðeins einu stigi fyrir ofan fallsvæðið.

Skotinn David Moyes hefur unnið þrekvirki með lið West Ham …
Skotinn David Moyes hefur unnið þrekvirki með lið West Ham í vetur. AFP


Ýmsir hleyptu brúnum þegar Moyes lét þessi orð falla. Og lái þeim hver sem vill. Hann var að sönnu farsæll sem stjóri Everton í heil ellefu ár, frá 2002 til 2013 – svo farsæll raunar að honum var treyst til að taka við keflinu af landa sínum Sir Alex Ferguson hjá Manchester United. Það fór eins og það fór. Næstu ár rann Moyes áfram á rassinum niður flughála brekkuna. Real Sociedad sagði honum upp störfum eftir tæpt ár. Næsti áfangastaður var Sunderland sem féll á hans vakt vorið 2017 – í fyrsta sinn sem Moyes þurfti að bíta í það súra epli. Eftir það sagði hann starfi sínu lausu.

West Ham var í ógöngum í kjallara úrvalsdeildarinnar veturinn á eftir og fékk Moyes að hirðinni í nóvember. Honum tókst að halda liðinu uppi og vann í leiðinni sinn 200. sigur í úrvalsdeildinni, aðeins sá fjórði í sögunni á eftir Sir Alex, Arsène Wenger og Harry Redknapp. Þannig að okkar maður fer ekki með fleipur; hann vinnur sigra. Eigi að síður var Moyes ekki boðinn framhaldssamningur um vorið.

Í því ljósi kom endurráðning hans til West Ham fyrir rúmu ári mörgum í opna skjöldu. Aftur tókst Moyes á hinn bóginn að rétta skútuna af og stýra henni án teljandi áreynslu upp í sextánda sæti, að hlið Gleðibankans. Og að þessu sinni fékk hann að halda áfram með liðið.
Guði sé lof og öllum góðum vættum, ljúka stuðningsmenn West Ham sundur einum munni enda lið þeirra ekki fimmta neðst á yfirstandandi leiktíð – heldur fimmta efst. Og með leik til góða á liðin fyrir ofan. Vinnist hann færðust Hamrarnir upp í fjórða sæti sem myndi skila þeim þátttökurétti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð, í fyrsta skipti í sögu félagsins.

Piltarnir frá 86

West Ham er að sönnu á framandi slóðum. Félagið hefur aldrei orðið enskur meistari en besti árangur þess er þriðja sætið 1985-86. Leikmennirnir úr því liði hafa ákveðna költstöðu hjá félaginu og ganga í daglegu tali undir nafninu Piltarnir frá 86. Má þar nefna Tony Cottee, Alan Devonshire, Frank McAvennie, Paul Goddard og Phil Parkes. Enska bikarinn hefur West Ham unnið í þrígang, síðast 1980, og Evrópukeppni bikarhafa einu sinni, 1965, eftir frækinn sigur á þýska liðinu 1860 München, 2:0. Útherjinn Alan Sealey gerði bæði mörkin og Bobby Moore lyfti bikarnum í leikslok. Þeir létust báðir langt fyrir aldur fram. Moore úr krabbameini en Sealey úr hjartaáfalli, eins og bróðursonur hans, markvörðurinn Les Sealey, sem einnig lék fyrir West Ham en þó lengst af fyrir Luton.

Bobby Moore er af mörgum talinn besti leikmaðurinn í sögu …
Bobby Moore er af mörgum talinn besti leikmaðurinn í sögu West Ham. AFP


Hvort núverandi lið West Ham verður framvegis þekkt sem Piltarnir frá 21 mun tíminn leiða í ljós en virtustu sparkskýrendur hefðu verið reknir á staðnum hefðu þeir spáð því fyrirfram að Moyes yrði í toppslag með lærisveina sína í vetur. Ekkert lið hefur komið meira á óvart – og þá erum við að tala um í jákvæðum skilningi. Um það geta allir verið sammála.

Allt er því hægt

Í ljósi gengisins í vetur hlýtur West Ham að setja stefnuna á Meistaradeildarsæti. Manchester City er auðvitað hlaupið á brott með dolluna sjálfa en það er ekki bara fjórða sætið sem er laust; vinni West Ham leikinn sem það á inni yrði liðið aðeins tveimur stigum á eftir Leicester City í þriðja sætinu og þremur stigum á eftir Manchester United í öðru sætinu. Allt er því hægt.

West Ham sækir Rauðu djöflana einmitt heim í Leikhús draumanna í kvöld, sunnudagskvöld, í réttnefndum sex stiga leik. Það sem sigur þar myndi færa Moyes fróun. Og aldrei hefur hann snúið upplitsdjarfari aftur á Old Trafford.

Enda þótt alltaf sé skemmtilegra að horfa upp töfluna má West Ham gæta sín á liðunum fyrir neðan sig. Everton er aðeins tveimur stigum á eftir og Tottenham Hotspur, sem hefur heldur betur verið að hressast í síðustu leikjum, þremur. Fimm stig eru í ríkjandi Englandsmeistara, Liverpool, sem sofa um stund miklum þyrnirósarsvefni.

Nánar er fjallað um gott gengi West Ham United í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins og leikmannahópur liðsins skoðaður.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert