Kvennalið Manchester United leikur á Old Trafford-vellinum er liðið fær West Ham í heimsókn laugardaginn 27. mars í ensku úrvalsdeildinni.
Kvennaliðið leikur heimaleiki sína á Leigh Sports Village-vellinum sem tekur 11 þúsund áhorfendur, en þar sem karlaliðið leikur ekki á Old Trafford-vellinum á sama tíma vegna landsleikjahlés, fær kvennaliðið afnot af vellinum í einn leik.
Dagný Brynjarsdóttir leikur með West Ham og fær því að leika á Old Trafford-vellinum, sem er einn sá frægasti leikvangur í heimi. Dagný kom til West Ham í janúar en vegna meiðsla hefur hún aðeins leikið einn leik með liðinu til þessa.
West Ham er í miklu basli í deildinni og í neðsta sæti með aðeins átta stig eftir fjórtán leiki. West Ham leikur gegn Birmingham 17. mars og heimsækir síðan Manchester United 27. mars.