Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Everton sem fær Manchester City í heimsókn á Goodison Park-völlinn í Liverpool í átta liða úrslitum enska bikarsins í fótbolta í kvöld.
Gylfi átti stóran þátt í að Everton tryggði sér sæti í átta liða úrslitunum því hann skoraði eitt mark og lagði upp þrjú til viðbótar í 5:4-sigri á Tottenham.
Manchester City er í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar með 71 stig og Everton er í sjöunda sæti með 46 stig og verður verkefnið því ærið fyrir Gylfa og félaga.