Brighton vann öruggan 3:0-sigur á Newcastle er liðin mættust í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og voru mörkin ekki af verri endanum.
Leandro Trossard sneri af sér varnarmann og sneri svo knöttinn í netið til að koma heimamönnum yfir áður en Danny Welbeck skoraði glæsimark úr langskoti. Neal Maupay innsiglaði svo sigurinn en mörkin má sjá í spilaranum hér að ofan.