Taka á móti Liverpool á Spáni

Liverpool þarf ekki að flytja heimaleik sinn í átta liða …
Liverpool þarf ekki að flytja heimaleik sinn í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. AFP

Real Madrid tekur á móti Liverpool í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í Madríd á Spáni hinn 7. apríl.

Það er BBC sem greinir frá þessu en óvíst var hvort leikurinn myndi fara fram á Spáni vegna sóttvarnareglna þar í landi vegna kórónuveirufaraldursins.

Í dag tilkynntu spænsk yfirvöld að ferðabanni frá Bretlandseyjum yrði aflétt hinn 30. mars.

Liverpool mætti RB Leipzig í sextán liða úrslitum keppninnar á Puskás Aréna í Búdapest en báðir leikirnir fóru fram í Ungverjalandi vegna sóttvarnareglna í Þýskalandi.

Síðari leikur liðanna fer fram 14. apríl á Anfield í Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert