Englandsmeistarar Liverpool unnu tólf úrvalsdeildarleiki í röð í fyrsta sinn frá stofnun deildarinnar 1992 er þeir lögðu Arsenal að velli, 3:1, á Anfield í september 2019.
Joel Matip kom heimamönnum á bragðið áður en Mohamed Salah skoraði tvö mörk í seinni hálfleik í leik þar sem Liverpool sýndi það sem koma skyldi. Félagið frá Bítlaborginni átti eftir að enda 30 ára eyðimerkurgöngu sína og verða Englandsmeistari vorið 2020.
Þegar Liverpool mætti á Emirates-leikvanginn síðar á leiktíðinni var liðið þegar búið að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn. Leikmenn Arsenal stóðu því heiðursvörð fyrir gestina í upphafi leiks. Sadio Mané kom svo Liverpool í forystu snemma leiks áður en Alexandre Lacazette jafnaði metin. Reiss Nelson skoraði svo sigurmark Arsenal en leikirnir tveir eru rifjaðir upp í spilaranum hér að ofan.
Arsenal tekur á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn en leikurinn hefst klukkan 19 og verður í beinni útsendingu á Símanum Sport. Upphitun hefst hálftíma fyrr og leikurinn verður jafnframt í beinni textalýsingu á mbl.is.