Arsenal vann öruggan 3:0-útisigur á botnliði Sheffield United í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Alexandre Lacazette braut ísinn fyrir Arsenal á 33. mínútu er hann kláraði af stuttu færi eftir stórglæsilegan samleik við vítateig Sheffield-manna og hælsendingu frá Dani Ceballos. Reyndist það eina mark fyrri hálfleiks.
Gabriel Martinelli bætti við öðru marki fyrir Arsenal á 72. mínútu eftir að Aaron Ramsdale í marki Sheffield United varði boltann beint fyrir fætur hans eftir skot frá Nicolas Pépé.
Lacazette skoraði sitt annað mark og þriðja mark Arsenal á 85. mínútu er hann slapp inn fyrir vörn Sheffield og skoraði af öryggi fram hjá Ramsdale eftir sendingu frá Thomas Partey og þar við sat.
Arsenal er í níunda sæti deildarinnar með 45 stig en Sheffield United er í botnsætinu með 14 stig, tólf stigum frá öruggu sæti þegar liðið á sjö leiki eftir.