Samfélagsmiðillinn Twitter lokaði í gær á notanda eftir að viðkomandi skrifaði ósæmilega færslu við tíst frá Raheem Sterling, leikmanni Manchester City og enska landsliðsins í knattspyrnu.
Eftir óvæntan ósigur City gegn Leeds í úrvalsdeildinni í gær, 1:2, skrifaði Sterling á Twitter: „Gleymum þessum leik.“
Ein af athugasemdunum við færsluna innihélt kynþáttaníð í garð Sterlings og við því var brugðist hratt.
„Það er engin þolinmæði gagnvart kynþáttaníði á Twitter og við erum afar einbeitt í þeirri viðleitni að tryggja að umræða um fótbolta á okkar miðli sé örugg fyrir stuðningsmenn, leikmenn og alla aðra sem tengjast íþróttinni,“ sagði talsmaður Twitter við Sky Sports.