Rólegt var yfir Evertonliðinu í kvöld þegar liðið heimsótti Brighton á suðurströndina í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Liðin gerðu markalaust jafntefli en Gylfi Þór Sigurðsson var á sínum stað á miðjunni hjá Everton.
Hjá Everton hefðu menn getað þegið þrjú stig þar sem liðið er í baráttu um að komast í Evrópukeppni. Everton er í 8. sæti með 48 stig.
Everton átti einungis eina tilraun sem rataði á mark andstæðinganna en liðið saknaði reyndar Dominic Calvert-Lewin sem er markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu.
Brighton er sjö stigum fyrir ofan fallsæti með 33 stig eins og Burnley. Stigi meira en Newcastle.