Gylfi Þór Sigurðsson og Harry Kane sáu um að skora mörkin þegar Everton og Tottenham Hotspur gerðu 2:2 jafntefli á Goodison Park í Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Harry Kane kom Tottenham yfir á 27. mínútu en Gylfi jafnaði úr vítaspyrnu á 31. mínútu. Staðan að loknum fyrri hálfleik var 1:1.
Gylfi kom Everton yfir á 62. mínútu en Kane jafnaði á 68. mínútu.
Helstu atvikin úr leiknum má sjá í meðfylgjandi myndskeiði en leikurinn var sýndur í beinni útsendingu hjá Símanum Sport.