Bruno Fernandes, portúgalski miðjumaðurinn hjá Manchester United, er fyrsti leikmaðurinn úr einhverju liðanna tólf, sem hyggjast stofna evrópska „ofurdeild“ í fótbolta, sem lætur í ljós óánægju með fyrirætlanirnar.
„Þú kaupir ekki drauma,“ sagði Fernandes á Instagram í dag.
Fjölmargir fyrrverandi leikmenn hafa tjáð skoðanir sínar. Mesut Özil, sem lék með Arsenal í átta ár en fór til Fenerbahce í ársbyrjun, sagði á Twitter: „Krakka dreymir um að vinna heimsmeistaratitilinn og Meistaradeildina, ekki einhverja ofurdeild.“