„Það besta við daginn í dag,“ sagði Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Manchester United, í samtali við Sky Sports eftir 3:1-sigur United gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni á Villa Park í Birmingham í dag.
United lenti 1:0 undir í leiknum en tap hjá United í dag hefði þýtt að Manchester City væri Englandsmeistari.
Solskjær var spurður hvort hann væri ánægður með að eyðileggja partíið fyrir City-mönnum og það stóð ekki á svari hjá norska stjóranum:
„Það er mjög ánægjulegt að hafa unnið og náð að eyðileggja eða seinka partíinu hjá Manchester City.
Ég þarf ekki að keyra í gegnum bláan her stuðningsmanna City í kvöld, sem er frábært.
Þetta er ekki í okkar höndum en við munum reyna að draga baráttuna á langinn eins lengi og við getum,“ bætti Solskjær við.