Það var feikinóg skorað af fallegum mörkum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á tímabilinu sem lauk í gær.
Mörk frá stórstjörnum á við Bruno Fernandes og Mohamed Salah eru á sínum stað en mörg glæsilegustu marka tímabilsins komu úr nokkuð óvæntum áttum; varnarmenn liða úr neðri helmingnum skoruðu til að mynda nokkur glæsileg mörk.
Þá skoraði einn markvörður stórglæsilegt sigurmark um þarsíðustu helgi.
Flottustu mörk ársins í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.