Englandsmeistarar Manchester City ætla að gera Jack Grealish að dýrasta enska knattspyrnumanni sögunnar og greiða Aston Villa allt að 100 milljónir punda fyrir landsliðsmanninn áður en leiktíðin hefst í ágúst.
Það er götublaðið Daily Mail sem segir frá þessu í morgun en þar kemur fram að félögin eigi í samræðum um kaupverð. City er að undirbúa fyrsta boð, sem mun hljóða upp á 75 milljónir, en forráðamenn Aston Villa vilja um 100 milljónir.
Grealish er 25 ára sóknarmaður sem hefur slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni og þá var hann í EM-hópi enska landsliðsins í sumar. Harry Maguire, varnarmaður Manchester United, er enn dýrasti Englendingurinn, en United keypti hann af Leicester fyrir tveimur árum á 80 milljónir.
Jack Gaughan, blaðamaður Daily Mail, segist hafa það eftir heimildarmönnum sínum að Grealish vilji fara til City og að afstaða leikmannsins muni liðka fyrir samningum milli félaganna.