Ekki hefur tekist að ljúka viðskiptum FC Barcelona og FC Liverpool vegna félagaskipta Brasilíumannsins Coutinho.
Barcelona samþykkti að greiða Liverpool 160 milljónir evra fyrir leikmanninn í janúar 2018. Enn eru 42 milljónir evra eftirstandandi eða 6,3 milljarðar á núverandi gengi.
Útvarpsstöðin SER í Katalóníu greindi frá þessu og telur að í fleiri tilfellum hafi félaginu ekki tekist að gera upp vegna leikmannakaupa. Þó er tekið fram að Barcelona hafi gert upp vegna Ousmane Dembele og Antoine Griezmann.