Leik Burnley og Tottenham Hotspur, sem átti að hefjast klukkan 14 í dag, hefur verið frestað vegna mikillar snjókomu í Burnley. Einnig snjóar mikið í Manchester þar sem Manchester City tekur á móti West Ham United í stórleik.
Sá leikur á einnig að hefjast klukkan 14 og miðað við myndband sem var birt á twitteraðgangi West Ham kyngir snjónum niður.
🌨❄️☃️#MCIWHU pic.twitter.com/TENmOKdVTm
— West Ham United (@WestHam) November 28, 2021
Etihad-völlur City virðist ekki jafn þakinn snjó og Turf Moor, heimavöllur Burnley, og því líklegra að leikurinn geti farið fram en að honum verði frestað, þó skjótt skipast veður í lofti.