Fjögur mörk voru skoruð á St.Mary's leikvanginum í Southampton í kvöld þegar Brendan Rodgers kom þangað í heimsókn með sína menn í Leicester í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Niðurstaðan varð 2:2 jafntefli en Jan Bednarek og Che Adams komu Dýrlingunum tvisvar yfir og þeir Jonny Evans og James Maddison jöfnuðu metin tvívegis fyrir Leicester
Mörkin má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.