Manchester City knúði fram sigur gegn Steven Gerrard og hans mönnum í Aston Villa í Birmingham í kvöld og halda öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.
Rúben Dias og Bernardo Silva komu City í 2:0 fyrir hlé, Dias með sannkölluðu glæsimarki, en Ollie Watkins svaraði fyrir Villa í byrjun síðari hálfleiks.
Mörkin og helstu tilþrifin má sjá í myndskeiðinu.