Tottenham getur ekki spilað gegn Rennes frá Frakklandi í Sambandsdeild karla í knattspyrnu annað kvöld vegna kórónuveirusmita hjá enska félaginu.
Leikurinn átti að fara fram í London og hefur gríðarlega þýðingu fyrir Tottenham sem þarf á sigri að halda til að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum keppninnar.
Alls eru þrettán leikmenn og starfsfólk félagsins í einangrun eftir að hafa greinst með smit og æfingasvæði aðalliðs Tottenham var lokað í dag.
„Við erum í viðræðum við UEFA og greinum frá því hvað verður um leikinn þegar það liggur fyrir," sagði í tilkynningu sem Tottenham birti í kvöld.
Tottenham á að mæta Brighton í úrvalsdeildinni á sunnudaginn og að sögn BBC er verið að skoða hvort fresta þurfi þeim leik einnig.