Gæti snúið aftur til Liverpool

Georginio Wijnaldum hefur ekki átt fast sæti í liði París …
Georginio Wijnaldum hefur ekki átt fast sæti í liði París Sg á tímabilinu. AFP

Georginio Wijnaldum gæti snúið aftur í ensku úrvalsdeildina þegar janúarglugginn verður opnaður. Það er Sky Sports sem greinir frá þessu.

Wijnaldum, sem er 31 árs gamall, er samningsbundinn París SG í Frakklandi en hann gekk til liðs við franska félagið á frjálsri sölu frá Liverpool í sumar.

Miðjumaðurinn hefur ekki átt fast sæti í liði París SG á tímabilinu og hefur komið við sögu í fjórtán leikjum í frönsku 1. deildinni á tímabilinu en hann hefur komið inn á sem varamaður í sjö þeirra.

Wijnaldum vill vera í góðu formi þegar heimsmeistaramótið í Katar fer fram á næsta ári og vill því fá að spila reglulega en forráðamenn París SG eru sagðir opnir fyrir því að leyfa leikmanninum að fara á láni í janúarglugganum.

Arsenal er sagt áhugasamt um að fá leikmanninn til sín en Wijnaldum lék með Newcastle áður en hann gekk til liðs við Liverpool sumarið 2016.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert