Á leið frá London til Madríd?

Antonio Rüdiger er lykilmaður í varnarleik Chelsea.
Antonio Rüdiger er lykilmaður í varnarleik Chelsea. AFP

Spænska knattspyrnufélagið Real Madrid gerir ráð fyrir því að fá þýska varnarmanninn Antonio Rüdiger frá Chelsea án greiðslu næsta sumar, þegar samningur hans þar rennur út.

Þetta segir The Athletic í dag og þar kemur fram að samkvæmt þeirra heimildum reikni Spánverjarnir með því að Rüdiger geri samkomulag við þá í janúar, þegar honum verður frjálst að ræða við önnur félög.

Rüdiger, sem er 28 ára gamall, kom til Chelsea frá Roma árið 2017 og hefur leikið 110 leiki með liðinu í úrvalsdeildinni. Hann varð Evrópumeistari með liðinu í vor, vann Evrópoudekildina með því 2019 og enska bikarinn 2018 og 2021. Rüdiger er fastamaður í þýska landsliðinu og á 49 landsleiki að baki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert