Margrét Lára Viðarsdóttir var gestur Tómasar Þórs Þórðarsonar í Vellinum á símanum sport. Á meðal þess sem þau ræddu var leikur Leeds og Arsenal í gær en Arsenal vann sannfærandi 4:1-sigur.
Arsenal nýtti sér slakan varnarleik Leeds hvað eftir annað, enda með nægt pláss til að spila sinn fótbolta í.
Umræðuna og atvik úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.