Sóknarleikur Chelsea í leik liðsins gegn Manchester City í gær var til umræðu í Vellinum í dag hjá þeim Tómasi Þór Þórðarsyni, Bjarna Þór Viðarssyni og Margréti Láru Viðarsdóttur. Romelu Lukaku var þá sérstaklega tekinn fyrir en hann þótti ekki standa sig vel í leiknum.
„Ég varð fyrir svolitlum vonbrigðum með Lukaku í gær. Mér fannst hann illa innstilltur, halda boltanum illa og taka lélegar ákvarðanir með boltann. Mér fannst hann ekki í takti við leikinn,“ sagði Margrét Lára meðal annars.
Umræðuna í heild sinni má sjá hér að ofan.
Leikur Manchester City og Chelsea var sýndur beint á Síminn Sport.