Brasilíski knattspyrnumaðurinn Bruno Guimaraes er að ganga til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle frá Lyon í Frakklandi.
Það er Guardian sem greinir frá þessu. Lyon samþykktu 33,5 milljón punda tilboð enska félagsins í miðjumanninn en hann mun gangast undir læknisskoðun hjá félaginu á föstudag.
Guimaraes, sem er 24 ára gamall, er frá Brasilíu og á að baki þrjá A-landsleiki fyrir brasilíska landsliðið.
Hann hefur byrjað 20 leiki með Lyon í frönsku 1. deildinni á tímabilinu en alls á hann að baki 71 leik með liðinu þar sem hann hefur skorað þrjú mörk.
Newcastler er í átjánda og þriðja neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 15 stig, stigi frá öruggu sæti.