Lögreglan í Manchester hefur handtekið hinn tvítuga Mason Greenwood, knattspyrnumann Manchester United, vegna gruns um heimilisofbeldi og nauðgun.
Harriet Robson, kærasta leikmannsins, birti myndir af sárum sem hún segir að sé eftir ofbeldi frá Greenwood.
Á myndunum má sjá stóra marbletti og blóðugt andlit. Þá birti hún hljóðupptöku þar sem maður, sem virðist vera Mason Greenwood, er að beita hana kynferðisofbeldi.
Félagið hefur sett leikmanninn í bann og mun hann hvorki æfa né spila með liðinu á meðan málið er í rannsókn. Þá hefur lögregla tekið skýrslu af Robson.