Bakvörðurinn Kieran Trippier var hetja Newcastle er liðið vann 1:0-heimasigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Trippier skoraði sigurmarkið beint úr aukaspyrnu á 35. mínútu. Newcastle hefur nú unnið þrjá leiki í röð og fyrir vikið fjarlægst neðstu lið deildarinnar.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.