Arsenal - Brentford sýndur beint á mbl.is

Brentfordmenn fagna sigri á Arsenal í fyrstu umferð deildarinnar á …
Brentfordmenn fagna sigri á Arsenal í fyrstu umferð deildarinnar á þessu keppnistímabili. Þeir heimsækja Arsenal í dag. AFP

Arsenal fær Brentford í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Emirates-leikvanginn í London klukkan 15.00 og leikurinn er sýndur beint hér á mbl.is. 

Útsendingin hefst kl. 14.30 með upphitun fyrir leikinn á Símanum Sport og er á sérvefnum Enski boltinn. Flautað er til leiks klukkan 15.00 en leikurinn er jafnframt í beinni textalýsingu.

Arsenal er í sjötta sæti deildarinnar með 39 stig en Brentford er í 14. sæti með 24 stig, sjö stigum ofan við fallsvæði deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert