Breski bankinn Barclays hefur lokað bankareikningi enska knattspyrnufélagsins Chelsea tímabundið. Ástæðan er refsiaðgerðir breska stjórnvalda í garð Roman Abramovich, eiganda félagsins.
Chelsea er með sérstakt leyfi til að halda áfram að starfa og þarf bankinn tíma til að sjá hvaða áhrif refsiaðgerðirnar hafa á bankareikninga félagsins. Chelsea vonast til að lokunin standi yfir í stuttan tíma.
Allar eigur Abramovich á Bretlandseyjum hafa verið frystar og þá má hann ekki stunda viðskipti innan Bretlands á næstunni. Hann getur því ekki selt Chelsea eins og til stóð.
Þá má félagið ekki selja miða á heimaleiki og verða því aðeins ársmiðahafar á Stamford Bridge næstunni. Félagið má ekki selja varning beint til stuðningsmanna, gera nýja samninga við leikmenn, kaupa nýja leikmenn né selja veitingar til þeirra sem fá að mæta á völlinn.
Félagið verður þó áfram starfandi og leikmenn og annað starfsfólk fá borguð laun. Abramovich má þó ekki hagnast á því að eiga félagið á meðan refsiaðgerðirnar eru við gildi.