Kurt Zouma, varnarmaður enska knattspyrnufélagsins West Ham United, hefur verið ákærður fyrir þrjú brot gegn breskum lögum um velferð dýra.
Zouma er gefið að sök að hafa níðst á ketti sínum.
Í febrúar síðastliðnum fór myndband í dreifingu á samfélagsmiðlum og skömmu síðar var það birt á fréttamiðlum, en þar sést Zouma sparka ítrekað í kött sinn, elta hann og slá hann, en barn sést fylgjast með aðförunum.
Þá sést Zouma kasta skóm í köttinn þar sem hann er á flótta og að lokum má sjá hann slá köttinn í andlitið.
Zouma hefur sjálfur beðist afsökunar á framferði sínu.
„Ég bið þá innilega fyrirgefningar sem var misboðið með þessu myndbandi og vil taka fram að kettirnir okkar tveir eru við bestu heilsu, elskaðir og dáðir af allri fjölskyldunni, og þessi hegðun mín var einstakt tilfelli sem endurtekur sig ekki," sagði Zouma í yfirlýsingu í febrúar.
Í kjölfarið voru báðir kettir Zouma fjarlægðir af heimili hans af dýraverndunarsamtökunum RSPCA.