Vilja framlengja gæsluvarðhald Greenwoods

Mason Greenwood.
Mason Greenwood. AFP

Lögreglan í Manchester mun í næstu viku fara fram á framlengingu á gæsluvarðhaldi á Mason Greenwood, fyrrverandi leikmanns Manchester United í enska fótboltanum.

Greenwood er grunaður um hin ýmsu ofbeldisbrot í garð fyrrverandi kærustu sinnar, þar á meðal kynferðisbrot. Þá er hann einnig grunaður um morðhótanir. Hann hefur verið laus gegn tryggingu undanfarna mánuði. 

Breska dagblaðið The Mirror greinir frá að rannsókn málsins standi enn yfir og því vilja lögregluyfirvöld framlengja gæsluvarðhald Greenwoods. Lögreglan mun fara með mál sitt fyrir dómara þann 23. júní næstkomandi. Hvorki Greenwood né fjölmiðlar verða á staðnum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka