Sir Jim Ratcliffe, stærsti einstaki landeigandi á Íslandi og ríkasti maður Bretlandseyja, hefur áhuga á að eignast enska knattspyrnufélagið Manchester United.
Hann hefur áður gert sig líklegan til að eignast stórlið á Englandi, því hann lagði fram tilboð í Chelsea fyrir þremur mánuðum síðan þegar félagið var sett á sölu.
Því tilboði var hafnað, en Ratcliffe hefur nú augastað á Manchester United. Glazer-fjölskyldan á United sem stendur en hún er ekki vinsæl hjá stuðningsmönnum félagsins. Hún gæti því freistast til þess að selja félagið, sem er eitt það verðmætasta í heimi.
Ratcliffe hefur mikinn áhuga á íþróttum og á hann hjólreiðafélagið Ineos Grenadiers og franska knattspyrnufélagið Nice.