Scott Parker rekinn frá Bournemouth

Scott Parker.
Scott Parker. AFP

Enska úrvalsdeildarliðið Bournemouth hefur rekið knattspyrnustjórann Scott Parker, nokkrum dögum eftir að liðið tapaði 9:0 gegn Liverpool.

Eigandinn Maxim Demim sagði í yfirlýsingu að „til að við getum haldið áfram að ná framförum sem lið og sem klúbbur, er nauðsynlegt að við stöndum saman í áætlun okkar um að reka klúbbinn á sjálfbæran hátt,“ sagði hann.

„Við verðum líka að sýna trú og virðingu í garð hvert annars.“


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert