Tveir leikir sýndir beint á mbl.is

Chelsea mætir til leiks gegn Brighton á suðurströnd Englands í …
Chelsea mætir til leiks gegn Brighton á suðurströnd Englands í dag. AFP/Joe Klamar

Tveir leikir í tólftu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu sem hefjast klukkan 14.00 í dag verða sýndir beint hér á mbl.is. 

Brighton tekur á móti Chelsea á heimavelli sínum í Falmer, úthverfi Brighton og Hove, og í vesturhluta London er það Brentford sem fær Úlfana frá Wolverhampton í heimsókn.

Útsendingarnar hefjast kl. 13.30 með upphitun á Símanum Sport og eru á sérvefnum Enski boltinn. Flautað er til leikjanna klukkan 14.00.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert