Enska knattspyrnufélagið Leeds United er að ganga frá kaupum á Austurríkismanninum Maximilian Wöber frá RB Salzburg í heimalandi hans.
Wöber er 24 ára gamall miðvörður sem á 13 landsleiki fyrir Austurríki. Hann hefur leikið með Salzburg frá árinu 2019.
Kaupverðið er talið vera um 12 milljónir evra en ef allt gengur eftir er möguleiki á að hann verði klár í næsta leik Leeds á miðvikudaginn en þá fær liðið West Ham í heimsókn.
Leeds er í 14. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 16 stig, þremur stigum fyrir ofan fallsæti.