Leeds er komið í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu eftir sannfærandi sigur á B-deildarliði Cardiff City á Elland Road í kvöld, 5:2.
Leeds leikur þar með á útivelli gegn annaðhvort Boreham Wood úr E-deild eða Accrington Stanley úr C-deild í fjórðu umferð keppninnar.
Leeds var 3:0 yfir í hálfleik kvöld og komst í 5:0 í seinni hálfleik. Wilfried Gnonto og Patrick Bamford skoruðu tvö mörk hvor og Rodrigo eitt.
Callum Robinson skoraði tvívegis fyrir Cardiff á lokamínútum leiksins og lagaði stöðuna fyrir velska liðið sem er í fallbaráttu í B-deildinni.