Leikur Leicester og Tottenham í 23. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu verður sýndur beint hér á mbl.is í dag en hann hefst klukkan 15 á King Power leikvanginum í Leicester.
Útsendingin hefst klukkan 14.30 með upphitun á Símanum Sport og er sýnd á sérvefnum Enski boltinn hér á mbl.is. Flautað er til leiks klukkan 15.
Tottenham er í fimmta sæti deildarinnar með 39 stig en Leicester er í 14. sæti með 21 stig.