Annað tap Newcastle í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu kom í kvöld er Liverpool lagði Newcastle, 2:0, á St. James' Park.
Newcastle-menn voru sprækir í byrjun leiks en á tíundu mínútu tók til tíðinda. Þá sendi Trent Alexander-Arnold Darwin Núnez í gegn, hann tók boltann niður með kassanum og negldi honum í hornið, 1:0, og Liverpool komið yfir.
Sjö mínútum síðar tvöfaldaði Cody Gakpo forystu Liverpool-manna er Salah sendi hann í gegn með vippsendingu og Hollendingurinn tók á móti boltanum og setti hann í netið, 2:0, og Liverpool í draumaheimi.
Martröð Newcastle hélt áfram því á 22. mínútu var Nick Pope, markvörður liðsins, rekinn af velli. Þá sló hann í boltann utan teigs er hann reyndi að skalla hann og koma í veg fyrir að Salah kæmist í boltann. Dómarinn rak hann síðan af velli.
Bæði lið fengu sín færi það sem eftir lifði leiks og Newcastle stóð ágætlega í Liverpool manni færri. Engin fleiri mörk litu þó dagsins ljós og því Liverpool sem fer með öll þrjú stigin heim.
Þetta er aðeins annað tap Newcastle í deildinni en það fyrra kom einnig gegn Liverpool. Newcastle er enn í fjórða sæti með 41 stig en Liverpool nálgast með 35 stig í áttunda sæti.