Leikur Leicester City og Arsenal í 25. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu verður sýndur beint hér á mbl.is í dag en hann hefst klukkan 15.
Útsendingin hefjast klukkan 14.30 með upphitun á Símanum Sport og eru leikurinn sýndur á sérvefnum Enski boltinn hér á mbl.is. Flautað er til leiks klukkan 15.
Arsenal er efst í deildinni með 54 stig, tveimur meira en Manchester City og á leik til góða. Leicester er í 14. sæti deildarinnar með 24 stig.