Junior Firpo skoraði sigurmark Leeds er liðið vann 1:0-heimasigur á Southampton í miklum fallslag í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Markið var það fyrsta sem bakvörðurinn skorar í deildinni með Leeds, en hann hefur mikið þurft að verma varamannabekkinn á leiktíðinni.
Markið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.