Tottenham vann góðan heimasigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, 2:0, á Tottenham-leikvanginum í London.
Með sigrinum styrkti Tottenham stöðu sína í fjórða sæti deildarinnar og í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu að ári. Tottenham er með 45 stig, fjórum stigum á undan Newcastle sem reyndar á tvo leiki til góða. Chelsea er enn í 10.-11. sæti ásamt Aston Villa með 31 stig.
Eftir bragðdaufan fyrri hálfleik þar sem bar einna hæst að Stuart Atwell sneri rauðu spjaldi á Hakim Ziyech leikmann Chelsea í gult eftir að hafa farið í skjáinn, tók Tottenham leikinn yfir í seinni hálfleik.
Eftir vandræðagang í vörn Chelsea á upphafssekúndum seinni hálfleiks í kjölfar þess að Kepa varði frá Emerson Royal barst boltinn til Oliver Skipp fyrir utan teiginn hægra megin. Skipp tók hann hálf skoppandi, smellhitti og Kepa réð ekki við skotið, 1:0.
Á 82. mínútu fékk Tottenham hornspyrnu. Son spyrnti á kollinn á Dier og þaðan barst boltinn til Harry Kane á fjærstönginni. Eftirleikurinn var auðveldur fyrir framherjann sem stýrði honum yfir línuna, 2:0.
Ekki voru fleiri mörk skoruð og góður sigur heimamanna staðreynd.
Mbl.is fylgdist vel með gangi mála og færði ykkur það helsta í beinni textalýsingu.