Chelsea - Leeds sýndur beint á mbl.is

Chelsea og Leeds mætast á Stamford Bridge í dag.
Chelsea og Leeds mætast á Stamford Bridge í dag. AFP

Leikur Chelsea og Leeds í 26. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu sem fram fer á Stamford Bridge í  London verður sýndur beint hér á mbl.is í dag en hann hefst klukkan 15.

Útsendingin hefjast klukkan 14.30 með upphitun á Símanum Sport og eru leikurinn sýndur á sérvefnum Enski boltinn hér á mbl.is. Flautað er til leiks klukkan 15.

Chelsea hefur aðeins unnið einn leik frá áramótum og er í 10. sæti deildarinnar með 31 stig. Leeds vann um síðustu helgi sinn fyrsta leik síðan í nóvember og er í 17. sætinu með 22 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert