Leikur Leicester og Chelsea í 27. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu sem fram fer á King Power leikvanginum í Leicester verður sýndur beint hér á mbl.is í dag en hann hefst klukkan 15.
Útsendingin hefjast klukkan 14.30 með upphitun á Símanum Sport og eru leikurinn sýndur á sérvefnum Enski boltinn hér á mbl.is. Flautað er til leiks klukkan 15.
Chelsea er í 10. sæti deildarinnar með 34 stig en Leicester er í 15. sæti með 24 stig.