Dagný Brynjarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu er tilnefnd í kjörinu á bestu knattspyrnukonu ársins 2022 í Lundúnum en verðlaunin verða afhent í kvöld.
Dagný, sem er fyrirliði West Ham, er ein af fimm sem eru tilnefndar í kjörinu en hinar fjórar eru allar stjörnuleikmenn í enska fótboltanum með Arsenal og Chelsea.
Það eru Beth Mead frá Arsenal, besta og markahæsta konan á EM kvenna í fyrra með enska landsliðinu, Kim Little, landsliðskona Skotlands og fyrirliði Arsenal, Sam Kerr, landsliðskona Ástralíu og leikmaður Chelsea sem er margverðlaunuð á sínum ferli, og Millie Bright, landsliðskona Englands og leikmaður Chelsea.
Í karlaflokki eru tilnefndir þeir Bukayo Saka og Martin Ödegaard frá Arsenal, Ivan Toney frá Brentford, Harry Kane frá Tottenham og Alexandar Mitrovic frá Fulham.